Léleg bein eru ástæða beinbrota hjá 1200 Íslendingum á ári hverju. Í
flestum tilvikum má koma í veg fyrir beinþynningu og beinbrot af völdum
hennar með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Uppskeruhátíð býflugnabænda og sultukynning Kvenfélagasambands Íslands.
Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum sunnudaginn 23. september milli kl 14.00 og 16.00 í
veitingatjaldi garðsins. Býflugnabændur af sunnanverðu landinu kynna
býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu
gefa gestum að smakka eigin framleiðslu af hunangi sem verður slengt
beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn íslensks hunangs
til sölu. Sýndar verða lifandi býflugur í sýningarbúri og að auki gefst
gestum tækifæri á að skoða og fræðast um býflugnabúið í garðinum. Kynnt
verður efnið bývax og ýmis útbúnaður sýndur. Sú hefð hefur myndast að
Kvenfélagasamband Íslands haldi sultukynningu á sama tíma og
uppskeruhátíðin fer fram og að þessu sinni munu konur úr Kvenfélaginu
Hvöt í Sandgerði koma með sultur sínar og kerti. Hægt verður að bragða
á afrakstri haustsins og uppskriftum dreift til gesta.
Í tímaritinu er að þessu sinni fjallað á fjölbreyttan hátt um
vellíðan og lífsstíl. Forsíðuviðtalið er við Önnu Elísabetu
Ólafsdóttur sem hefur gengt embætti forstjóra Lýðheilsustöðvar. Í
tímaritinu er einnig viðtal við Elínu Ebbu Ásmundsdóttir iðjuþjálfa og
lektor við Háskólann á Akureyri sem hefur unnið að fjölmörgum verkefnum
sem snúa að geðheilsu. Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti skrifar
um gildi fitu í fæðu. Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari skrifar um
vefjagigt og lesendur fá góð ráð frá Jónu Björgu Sætran
menntunarfræðingi. Sigurlaug Margrét Jónasardóttir sér um fjölbreyttan
Sælkeraþátt og Helga Jóna Þórunnardóttir og Ásdís Birgisdóttir sjá um
glæsilega handavinnuþætti með sérhönnuðum verkefnum.
Húsfreyjan fæst víða í bókaverslunum og í áskrift hjá K.Í. á Hallveigarstöðum sími: 551 7044 netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Íslenskar konur hafa gefið Húsfreyjuna út samfellt í 58 ár, ritstjóri er Kristín Linda Jónsdóttir í Miðhvammi í Þingeyjarsýslu.