Kvenfélagasamband Íslands hefur gefið tímaritið Húsfreyjuna út frá því árið 1949.
Húsfreyjan er jákvætt og hvetjandi tímarit, og jafnframt hluti af íslenskri kvennamenningu og sögu.
Tímaritið kemur út fjórum sinnum á ári og er einkum selt í áskrift en einnig í lausasölu í bókaverslunum. Í Húsfreyjunni eru m.a. efnismikil viðtöl þar sem rætt er við einhverjar þeirra fjölmörgu íslensku kvenna sem hafa skipt sköpum í íslensku samfélagi á einn eða annan hátt. Fréttir af starfi íslenskra kvenfélagskvenna. Nýjar og áhugaverðar mataruppskriftir og fjölbreyttur handavinnuþáttur. Fræðslugreinar frá Leiðbeiningarstöð heimilanna. Ýmiskonar fræðslupistlar um heilsu og lífsstíl, góð ráð og krossgáta, svo nokkuð sé nefnt.
Húsfreyjan er vandað tímarit gefið út af kvenfélagskonum á Íslandi fyrir konur sem geta lesið íslensku. Ársáskrift 2021 kostar aðeins 5900 krónur. Blaðið í lausasölu kostar 1990 kr .
Viljir þú bætast í hóp ánægðra áskrifenda, eða gefa áskrift að Húsfreyjunni, snúðu þér þá til skrifstofu Kvenfélagasambands Íslands netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
sími: 5527430