Kvenfélagasamband Íslands

Kvenfélagasamband Íslands, KÍ, var stofnað þann 1. febrúar 1930.
Stofndagurinn, 1. febrúar, var árið 2010 útnefndur „Dagur kvenfélagskonunnar"
Markmiðið með stofnun Kvenfélagasambandsins var að kvenfélög landsins ættu sér samstarfsvettvang og málsvara. Innan KÍ starfa 17 héraðssambönd með um 143 kvenfélög innanborðs.

Stjórn og stofnanir

Stjórn Kvenfélagasambands Íslands er kosin á landsþingi sem haldið er þriðja hvert ár sem og á árlegum formannaráðsfundum.
Í stjórninni eiga sæti fimm konur og tvær til vara. Landsþing fer með æðsta vald í málefnum sambandsins, á milli landsþinga fer formannaráð með æðsta vald. Í formannaráðinu sitja formenn héraðssambanda Kvenfélagasambands Íslands, formaður kvenfélags með beina aðild að KÍ og stjórn KÍ.
Stjórn KÍ hefur á hendi framkvæmd þeirra mála sem landsþing og formannaráð ákveða hverju sinni.

Stjórn Kvenfélagasambands Íslands

Forseti:   This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Varaforseti: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Gjaldkeri:    This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Ritari:    This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Meðstjórnandi:    This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Varastjórn:    This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 


Skrifstofa KÍ.

Aðsetur KÍ og þjónustuskrifstofa er í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Á skrifstofu KÍ er veittar upplýsingar, ráðgjöf og fræðsla til kvenfélaganna og héraðssambanda þeirra, skipulagðir fundir og þing ásamt daglegum rekstri og því sem til fellur hverju sinni.
KÍ á og rekur Leiðbeiningastöð heimilanna og gefur út tímaritið Húsfreyjuna.



Skrifstofan er opin frá 10.00-16.00 mánudaga - fimmtudaga.

Starfsmaður skrifstofu er: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sími skrifstofunnar er 552-7430

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2022 Kvenfélagasamband Íslands