Gjöf til allra kvenna á Íslandi sem safnað var fyrir í tilefni 90 ára afmælis Kvenfélagasambands Íslands hefur nú verið afhent á alla 7 fæðingarstaði á landinu. Hringnum var lokað er formleg afhending fór fram 8. september 2026, á Fjórðungssjúkrahúsiu á Neskaupsstað. Heilbrigðisstofnun Austurlands bauð í móttöku þann dag til að þakka fyrir þær gjafir sem borist hafa til þeirra á árinu.
Þetta er síðasti afhendingarstaðurinn og kerfið því komið í fulla notkun á öllum fæðingarstöðum á landinu.
Í tengslum við söfnunina 2020 náðist að safna samtals um 30 milljón króna. Ákveðið var að nota þær til kaupa á tækjakosti og hugbúnaði (Milou) honum tengdum, sem stuðlar að bættri heilsuvernd kvenna um land allt. Þessi hugbúnaður verður settur upp á 7 fæðingarstöðum á landinu. Þó svo að fæðingastaðir séu tækjum búnir fyrir sína starfsemi bætist nú við hugbúnaður sem gefur möguleika á að sjúkraskrárgögn sem tengjast fósturhjartsláttarritum og sónarniðurstöðum er nú hægt að vista miðlægt. Einn af stóru kostunum við hugbúnaðinn er, að þessi tækni getur komið í veg fyrir að senda þurfi konur jafnvel um langan veg til til frekari skoðunar. Niðurstöðurnar eru á rafrænu formi og hægt er að nálgast þær og skoða þar sem meiri sérhæfing er til staðar.
Fósturhjartsláttarritin er hægt að sjá í rauntíma og fá þar með eftir öruggum leiðum faglegt álit frá hærra þjónustustigi, eins og t.d.hjá Kvennadeild LSH eða á Akureyri. Ekki þarf lengur að prenta út ritin og fleiri geta séð þau hvort heldur er inni á fæðingarstofunni þegar konur eru í fæðingu, eða þegar sinnt er eftirliti með fóstri á meðgöngu eða vegna einhverra áhættuþátta. Það að hafa sjúkraskrárgögn vistuð miðlægt er gríðarlega mikið öryggisatriði fyrir konur bæði í meðgöngu og fæðingu. Með því móti er alltaf hægt að nálgast mikilvægar upplýsingar og einnig eru þær vistaðar með ábyrgum og löglegum hætti. Hægt er að meta gögnin hvenær sem er, í rauntíma og milli skoðana auk þess sem þessi gögn fylgja rafrænni meðgönguskrá konunnar.
Söfnunin 2020 var mikil áskorun á þeim tíma er Covid var í algleymingi. En ekki síður hefur það verið áskorun að koma kerfinu upp á alla fæðingarstaði. Björk Steindórsdóttir, ljósmóðir á HSU hefur verið KÍ innan handar við það verkefni ásamt fjölmörgum öðrum innan heilbrigðiskerfisins og er þeim þakkað fyrir góða vinnu.


