Í tilefni sumars er Húsfreyjan stútfull af efni og uppskriftum að mat og handavinnu sem tengjast sumri. Húsfreyjan hvetur okkur til að njóta samveru, matar og íslenska sumarsins.
Á forsíðunni er hún Kristín Le, sem kom til Íslands sem flóttabarn frá Víetnam. Ritstjóri Húsfreyjunnar settist niður með Kristínu. Kristín segir sína sögu og gefur að auki lesendum góð ráð og ljúffengar uppskriftir frá Víetnam, sem myndu sóma sér vel í sumarboðinu. Í dag miðlar hún sinni þekkingu í gegnum námskeið og samfélagsmiðla. Markmið hennar er að kenna fólki að borða án boða og banna.
Ritstjóri ræddi einnig við Hraundísi Guðmundsdóttur, sem er skógfræðingur, ilmolíufræðingur og frumkvöðull á Hvanneyri. Hún fór alla leið til Arizona til að læra að eima íslenskar plöntur til að gera ilmkjarnaolíur. Ilmkjarnaolíur sem eru líkt og skógarbað í flösku. Hraundís fræðir okkur um mismunandi eiginleika ilmkjarnaolíanna sem hún framleiðir.
Leiðbeiningastöð heimilanna tileinkar sína grein íslensku grænmeti og hvernig við getum útbúið ljúffeng sumarleg salöt.
Í tilefni árs kvenna í landbúnaði, ræddi Húsfreyjan við Maríu Ýr Daðadóttur, garðyrkjubónda á Birkiflöt. En hún er ein af þeim sem færir okkur ferskt íslenskt grænmeti á diskinn okkar. Grænmetið selur hún í matvöruverslunum um land allt og í sjálfsafgreiðslubúðinni við Birkiflöt. Flottur bíltúr í sumar.
Matarþáttur Húsfreyjunnar í umsjón Alberts Eiríkssonar, gefur uppskriftir frá hádegismatarboði ítölskunema, þar sem ítalskur matur var í öndvegi. Þar má finna uppskriftir að m.a. Sjávarréttapasta, Nautaskönkum frá Mílanó og Risotto með saffran og skógarsveppum. Allt uppskriftir sem sóma sér vel í hvaða sumarboði sem er.
Hannyrðahornið í umsjón Láru Magneu Jónsdóttur býður upp á skemmtileg verkefni bæði í prjón og fallegum útsaum. Púðinn Vorboði, Hosurnar hennar Mömmu og Vorgula vettlinga. Lára hvetur okkur til að vera duglega að taka handavinnuna með í bílinn, í bakpokann, í tjaldið og hvar þar sem við ætlum að vera í sumar.
Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og fyrrum ritstjóri Húsfreyjunnar hvetur okkur í grein til að njóta náttúrunnar í vor og sumar. Kristín Linda sem er líka formaður aðdáendaklúbbs Jane Austin segir okkur líka frá bókum Jane Austen í skemmtilegri grein.
Að þessu sinni eru tvær smásögur í blaðinu. Furðulegar færslur, eftir Fanneyju Björk Ingólfsdóttur og Umskiptingur, eftir Eyglóu Jónsdóttur. Smásögur sem koma á óvart. En þær væru báðar valdar til birtingar í Smásögusamkeppni Húsfreyjunnar.
Húsfreyjan heimsótti Nýsköpunarsetrið við Lækinn í Hafnarfirði og ræddi við Bryndísi Steinu Friðgeirsdóttur, forstöðumann setursins. Bryndís segir að markmið hússins sé að brjóta niður veggi milli ólíkra hópa, með þeirri fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram.
Sagt er frá gjöf Kvenfélagasambands Íslands til Heilsugæslunnar á Höfn í Hornafirði, nýjar konur í stjórn KÍ eru kynntar og sagt frá formannaráðsfundi sem fór fram í Borgarnesi.
Allt þetta og svo margt fleira í sumarblaði Húsfreyjunnar. Njótið lestursins, sumarsins og samveru.
