Kvenfélag Álftaness 100 ára

Í tilefni 100 ára afmælisins buðu kvenfélagskonur í Kvenfélagi Álftaness, bæjarbúum og öðrum gestum í kaffisamsæti í Lambamýri sem er ný félagsmiðstöð aldraðra á Álftanesi á kosningadaginn 16. maí síðastliðin.

Boðið var upp á kaffi og kökusneið. Fjölmargir mættu, meðal annars bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson og sýndu þannig Kvenfélaginu virðingu og þakklæti fyrir það starf sem félagið vinnur í samfélaginu.

Guðrún Brynjólfsdóttir, formaður Kvenfélagsins var þar uppáklædd í þjóðhátíðarkyrtil félagsins. Kyrtillinn var vígður á 17. júní 1989.  En á þeim tíma hét félagið Kvenfélag Bessastaðahrepps, Þegar nafni Bessastaðahrepps var formlega breytt þann 17. júní 2004 í Sveitarfélagið Álftanes var nafni kvenfélagsins einnig breytt og hefur félagið verið kennt við Álftanes upp frá því.  Félagið var stofnað á Bessastöðum 25. apríl 1926.  Fyrsti formaður var Elín Vigfúsdóttir, húsfreyja á Bessastöðum.

Til gamans má geta að í nóvember 1980 gekk forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, í kvenfélagið. Eliza Reid gekk svo í félagið þegar maður hennar Guðni Th. Jóhannesson var forseti.

Áður höfðu þær haldið upp á afmælið á afmælisdaginn 25. apríl í boði á Bessastöðum, þar sem frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands tók á móti félagskonum.

Hamingjuóskir enn og aftur með 100 árin!

 

b4d3dce0 22e3 42d5 8b1e 607415a66c64

Formaður Kvenfélags Álftaness, Guðrún Brynjólfsdóttir og Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands.

 

d6f62a9c 09ea 4c49 a68a 370060520c00

Kvenfélagskonur taka á móti bæjarstjóranum, Almari Guðmundssyni.

minni með heiðursfélaga

Heiðursfélagi Kvenfélags Álftaness, Elín Jóhannsdóttir og formaður Guðrún Brynjólfsdóttir.

3be45fda 30cc 4682 a12b 8c0ff7a977a7

 

3ed057c7 c030 4567 afca 173311f592db

 

f40873f6 6f18 49eb a71b 8adb82e95d71

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands