Nýjar konur í stjórn Kvenfélagasambands Íslands

Tvær nýjar konur voru kosnar í stjórn Kvenfélagasambands Íslands á 73. formannaráðsfundi sem haldin var á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi helgina 27. - 28. febrúar 2026.

Hildur Traustadóttir, úr Kvenfélaginu 19. júní á Hvanneyri var kosin ritari KÍ til næstu þriggja ára. Hildur hefur verið félagi í Kvenfélaginu 19. júní frá árinu 1995. Áður var hún í Kvenfélagi Ljósvetninga, en í það gekk hún aðeins 19 ára gömul og var formaður þess um tíma. Hún átti þá einnig sæti í stjórn Sambands þingeyskra kvenna. 

Ragna Guðmundsdóttir var kosin í varastjórn KÍ til næstu þriggja ára. Ragna kemur úr Félagi kvenna í Kópavogi, sem hún hefur verið í frá stofnun þess 2019. Ragna er einnig núverandi formaður Kvenfélagasambands Kópavogs. 

Velkomnar í stjórn kæru konur. 

 

stjórn 2026smaller

Magðalena K. Jónsdóttir, gjaldkeri. Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti. Hildur Traustadóttir, nýkjörin ritari. Ragna Guðmundsdóttir, nýkjörin í varastjórn. Eva Björk Harðardóttir, varaforseti og Rósa Marinósdóttir, meðstjórnandi. á myndina vantar Helgu Guðmundsdóttur, varastjórnarkonu sem ekki átti heimangengt á fundinn.

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands