73. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands haldinn í Borgarnesi 27. – 28. febrúar 2026.
Skorar á stjórnvöld að hrinda í framkvæmd 14. grein í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar sem fjallar m.a. um að auka fjárfestingu sem styrkir stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt og að leiða þjóðarátak í umönnun eldra fólks, m.a. fjölga hjúkrunarrýmum og efla heimahjúkrun, og vinna að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn.

