Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2026 er komið út

Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2026 er komið út.

Að venju er blaðið stútfullt af áhugaverðu efni. Í forsíðuviðtali að þessu sinni er Helena Hólm, hárgreiðslumeistari, ferðaþjónustubóndi og geitahirðir. Helena tók algjöra u-beygju í lífinu á miðjum aldri, þegar hún ásamt manni sínum lét gamlan draum rætast og gerast bóndi í Flóahreppi.

Fjallað er um nýútkomna bók, Ástarkraft, sem þær Berglind Rós og Silja Bára ritstýra. Berglind Rós ræddi við ritstjóra Húsfreyjunnar um bókina sem gefin er út af Hinu íslenska ástarrannsóknarfélagi í samstarfi við Háskólaútgáfuna.

Margrét Skúladóttir sem er forsprakkinn að stofnun Þjóðbúningafélags Vestfjarða er í viðtali og segir meðal annars frá því að síðan félagið var stofnað hafi yfir 200 búningar verið saumaðir á Vestfjörðum.

Nýr umsjónaraðili Hannyrðahornsins, Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður, býður upp á uppskrift að afgangatrefli og skemmtilegum útsaum á púða.

Leiðbeiningastöð heimilanna gefur góð ráð um þrif og gátlista fyrir skipulögð þrif.

Smásagan að þessu sinni er eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og nefnist Óhræsið. Sagan var ein af þeim sem var valin til birtingar í síðustu Smásagnasamkeppni Húsfreyjunnar.

Húsfreyjan ræðir við Stellu Ingibjörgu Leifsdóttur Nielsen, eiganda verslunarinnar Belladonna. Hún ræðir hvernig það kom til að hún hóf rekstur og áskoranir í rekstri og persónulega lífinu.

Hulda Brynjólfsdóttir skrifar um Ullarvikuna á Suðurlandi sem hefur verið haldin árlega á Suðurlandi frá árinu 2021. Ullarvikan færir lesendum einnig uppskrift að Ullarvikuhúfunni 2026, sem lesendur geta byrjað að prjóna.

Í blaðinu er umfjöllun um Ár kvenna í landbúnaði en Sameinuðu þjóðirnar hafa tilnefnt árið 2026 sem ár kvenna í landbúnaði. Sagt er frá verkefni Alþjóðasambands dreifbýliskvenna á Indlandi en aðalmarkmið verkefnisins var að innleiða sjálfbærar ræktunaraðferðir til að tryggja bændasamfélögum tryggara lífsviðurværi.

Í Matarþætti Húsfreyjunnar sem Albert Eiríksson sér um, gefa fyrrum skólastúlkur úr Hússtjórnarskólanum á Varmalandi gómsætar uppskriftir sem þær báru fram í dömuboði. Þar má meðal annars finna uppskriftir eins og Sous Vide lambalæri, rækjukokkteil með avókadó og mangó, tengdamömmueplakaka og kaffifrómas.

Ritstjóri Húsfreyjunnar ræddi við Sigrúnu Jónsdóttur, ADHD-markþjálfa um ADHD á kvennamáli. Hún ræðir meðal annars um seinar greiningar kvenna, hormóna og ADHD og bjargráð og leiðir til betra lífs þrátt fyrir greiningu.

Þorsteinn Gunnar Jónsson (Doddi), bókasafnsvörður og starfsmaður á Amtsbókasafninu á Akureyri, segir frá starfi safnsins en safnið heldur upp á 200 ára afmæli á næsta ári. En bókasöfn hafa breyst mikið í áranna rás og eru nú miklu meira en bara safn til að fá lánaðar bækur, þau eru orðin að samfélagsmiðstöðvum þar sem allir eru velkomnir.

Eins og venjan er í febrúarblaði Húsfreyjunnar gefum við kvenfélögunum sérstakan gaum, en þau hafa verið dugleg að senda inn efni í blaðið. Meira efni frá kvenfélögunum mun birtast í næstu tölublöðum.

Krossgátan er svo að sjálfsögðu á sínum stað. Fullt af fjölbreyttu efni til að lesa og njóta.

Njóttu lestursins.

Húsfreyjan fæst bæði í áskrift og í lausasölu í verslunum víða um land.

Vertu með í hópi ánægðra áskrifenda.

Húsfreyjan 1. tbl. 2026Small

 

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands