Stjórn Kvenfélagasambands Íslands þykir rétt að árétta að um orlof húsmæðra gilda lög frá Alþingi: Nr. 53/1972 um orlof húsmæðra: https://www.althingi.is/lagas/156b/1972053.html
Í 1. mgr. 2.gr. laganna er skýrt tekið fram að það eru héraðssambönd Kvenfélagasambands Íslands sem kjósa á ársfundi sínum orlofsnefndir fyrir orlofssvæðin hvert í sínu umdæmi.
Lög frá Alþingi eru ofar lögum félaga og því alveg ljóst að orlofsnefndum ber að fara eftir þeim lögum og reglum sem Alþingi setur orlofsnefndunum. Kvenfélagasamband Íslands hefur enga aðkomu að starfsemi orlofsnefnda.
Það er því ljóst að þær orlofsnefndir sem ekki hafa verið skipaðar af Héraðssamböndum Kvenfélagasambandsins eru hvorki löglega kosnar né hafa rétt til að starfa. Hægt er að sjá hér á listanum af heimasíðu Kvenfélagasambandsins hvaða héraðssambönd eru skv. lögum frá Alþingi heimilt að kjósa í orlofsnefndir: https://kvenfelag.is/heradssambond-og-kvenfelog-ki/heradssambond-og-kvenfelog
Stjórn Kvenfélagasambands Íslands
