Vorblað Húsfreyjunnar er nú komið út og ætti að vera að detta inn um póstlúgur í dag eða strax eftir helgina. Eins og alltaf þá er blaðið fullt af góðu efni til að njóta og lesa.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sem hefur verið áberandi í jafnréttisbaráttunni undanfarin ár, gefur lesendum innsýn í þann kraft sem býr í samstöðu og sameiginlegri baráttu í einlægu forsíðuviðtali nú þegar nær hálft ár er liðið af Kvennaárinu 2025.
Ritstjóri Húsfreyjunnar ræddi við Maríu Rún Bjarnadóttur yfirlögfræðing um störf hennar hjá ríkislögreglustjóra og ástarsvik, sem eru miklu meira en bara fjársvik. Hún ræðir meðal annars um það hvernig má varast þessa skipulögðu glæpi og hvernig aðstandendur þeirra sem í þessu lenda geta veitt mikilvægan stuðning við að díla við það tilfinningalega ofbeldi sem þessir glæpir eru.
Ásdís Birgisdóttir sem er textílhönnuður, húsgagnabólstrari, leiðsögumaður og landvörður segir frá því hvernig hver beygja í lífinu hafi fært henni ný tækifæri og verkefni til að takast á við. Hún gefur að auki lesendum uppskrift að fallegu prjónuðu axlarstykki sem gæti nýst vel til að hlýja aðeins í sumar.
Sigríður Embla Heiðmarsdóttir ræðir um vorið og garðyrkjuna og gefur lesendum góð ráð fyrir garðverkin.
Kvenfélag Fnjóskdæla fagnaði 120 ára afmæli félagsins í apríl síðastliðnum og af því tilefni skrifar formaður félagsins, Sigrún Jónsdóttir, um kvenfélagsstarfið og sögu félagsins.
Ritstjóra Húsfreyjunnar var boðið í þriggja ára afmæli Handavinnuhóps íslenskra og úkraínskra kvenna sem hittist vikulega í Fíladelfíu. Birgit Raschhofer segir frá tilurð hópsins sem hefur veitt úkraínskum flóttakonum nærandi samveru sem gefur þeim andlega næringu og augnabliksfrið frá stríðinu heima fyrir.
Albert Eiríksson umsjónarmaður matarþáttarins og Silla Páls ljósmyndari skelltu sér í fjölskylduveislu í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík, þar sem öllu var tjaldað til. Lesendur Húsfreyjunnar fá gómsætar uppskriftir af því sem í boði var í veislunni.
Brynhildur Auðbjargardóttir, tónmenntakennari og kórstjóri í Hafnarfirði, er höfundur smásögunnar „Afmælið“ sem er ein af þeim sögum sem voru valdar til birtingar að lokinni Smásagnasamkeppni Húsfreyjunnar á síðasta ári.
Kristín Örnólfsdóttir sem hefur umsjón með Hannyrðahorninu færir okkur þrjár sumarlegar og spennandi prjónauppskriftir; grifflur í þremur stærðum, fallega sumarhúfu og uppskrift að léttum og víðum stuttermabol með laska sem gaman verður að prjóna og skarta í sumar.
Leiðbeiningastöð heimilanna gefur góð ráð og gómsætar uppskriftir af marineringum sem eru tilvaldar á kjöt og grænmeti til að grilla í sumar.
Bjarnveig Skaftfeld sem býr að Ytra- Álandi í Þistilfirði með manni sínum, Skúla Ragnarssyni, ræddi við Kristínu S. Gunnarsdóttur um störf sín til eflingar góðs mannlífs á svæðinu. En síðastliðið sumar var Bjarnveig heiðruð fyrir sitt framlag af sveitarfélaginu.
Allt þetta, krossgátan og margt fleira í nýjasta tölublaði Húsfreyjunnar.
Við vonum að þið njótið lestursins.