Skrifstofa Kvenfélagasambands Íslands og Húsfreyjunnar verður lokuð dagana 15. - 26. maí vegna farar starfsmanns okkar á Heimsþing Alþjóðasambands dreifbýliskvenna (Associated Country Women of the World - ACWW). Þingið er að þessu sinni í Kúala Lúmpúr í Malasíu. En þangað fara 10 kvenfélagskonur víða af landinu ásamt einum eiginmanni. Þar af þrír fyrrum forsetar KÍ. Búist er við um 500 þátttakendum sem koma allstaðar af úr heiminum, á þingið sem stendur yfir dagana 17.- 25. maí. Við bendum á að á meðan skrifstofan er lokuð er hægt að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. vegna málefna KÍ og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. vegna Húsfreyjunnar. Áríðandi erindum verður svarað eins og kostur er.