Í sumar bauð stjórn KÍ og útgáfustjórn Húsfreyjunnar til Kveðjuhófs í tilefni af starfslokum Kristínar Lindu Jónsdóttur sem verið hefur ritstjóri Húsfreyjunnar síðan 2004. Fyrrum forsetum KÍ sem Kristín Linda hefur starfað með í um 18 ár sem ritstjóri, útgáfustjórn og stjórn KÍ var boðið á skrifstofu Kvenfélagasambandsins á Hallveigarstöðum. Stjórn KÍ og útgáfustjórn þökkuðu Kristínu Lindu fyrir sín störf og góð kynni og færðu Kristínu Lindu þakklætisvott fyrir sín góðu störf fyrir Húsfreyjuna í öll þessi ár. Megi gæfan fylgja henni í nýjum ævintýrum.
Magðalena Jónsdóttir gjaldkeri KÍ og Húsfreyjunnar, Sólrún Guðjónsdóttir ritari KÍ, Helga Guðmundsdóttir fyrrum forseti KÍ, Drífa Hjartardóttir fyrrum forseti KÍ, Sigurlaug Viborg dyrrum forseti KÍ og Björg Baldursdóttir formaður útgáfustjórnar Húsfreyjunnar.
Kristín Linda Jónsdóttir og Silla Páls ljósmyndari Húsfreyjunnar.
Kristín Linda Jónsdóttir
Björg Baldursdóttir
Eva Björk Harðardóttir varaforseti KÍ, Helga Guðmundsdóttir. Sigurlaug Viborg, Linda B. Sverrisdóttir útgáfustjórn, Drífa Hjartardóttir, Jenný Jóakimsdóttir starfsmaður KÍ og Húsfreyjunnar, Sólrún Guðjónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir fráfarandi forseti KÍ, Björg Baldursdóttir, Guðrún Þóranna Jónsdóttir útgáfustjórn. Krjúpandi; Kristín Linda Jónsdóttir, Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ og Magðalena Jónsdóttir gjaldkeri KÍ.
Dagmar Elín Sigurðardóttir, Kristín Linda Jónsdóttir og Björg Baldursdóttir.
Dagmar Elín Sigurðardóttir og Kristín Linda Jónsdóttir
Kristín Linda Jónsdóttir og Jenný Jóakimsdóttir
Ljósmyndir tók Silla Páls ljósmyndari Húsfreyjunnar.