Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) hefur í samstarfi við Saumahorn Siggu gefið út þrjú myndbönd með algengum viðgerðum á fatnaði. Myndböndin eru hluti af verkefninu Vitundarvakning um fatasóun sem KÍ hefur unnið að síðastliðin ár með stuðningi frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytini.
Myndböndin sína einfaldar aðferðir við algengar viðgerðir.
Þau eru: að þrengja streng, að stytta buxur og að gera við gat.
Myndböndin er hægt að sjá hér að neðan og á Youtube rás Kvenfélagasambands Íslands.