Helgina 20. - 21. nóvember nk. var fyrirhugað að halda jólafund og afmælisfagnað í tilefni 90 ára afmælis KÍ, en þeir viðburðir verða því miður felldir niður vegna sóttvarna.
Formannaráðsfundur laugardaginn 21. nóvember verður færður í netheima og mun fara fram rafrænt. Formannaráð hefur verið sent fundarboð, vinsamlega notið skráningarformið í fundarboðinu og tilnefnið annan fulltrúa ef þið einhverra hluta vegna getið ekki mætt.