Þann 18. janúar sl. fór hópur kvenfélagskvenna úr Grímsnesi í heimsókn á HSU Selfossi. Tilefni heimsóknarinnar var að færa HSU formlega að gjöf rúmhjól, sem félagið færði stofnuninni í lok síðasta árs. Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur ekki haft áður til umráða slíkt hjálpartæki. En þar er það notað af einstaklingum sem koma í blóðskilun.
Kvenfélag Grímsneshrepps er eitt af elstu kvenfélögum landsins og fagnar á þessu ári, þann 24. apríl 100 ára afmæli. Í tilefni afmælisins gefur kvenfélagið út sögu félagsins þessi 100 ár.
Sjá nánar á heimasíðu HSU