Velkomin á söguslóðir kvenna í Reykjavík!
24. október leiðir Birna Þórðardóttir göngu um Vesturbæinn, Kvosina og Þingholtin, þar sem hún segir frá konum sem hafa markað spor sín á borgina. Að lokinni göngu er boðið upp á kaffi og kökur á Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum og Lay Low spilar lög við ljóð eftir íslenskar konur.
Gangan leggur af stað frá Hallveigarstöðum kl. 17:00 þriðjudaginn 24. október næstkomandi og tekur tæpan klukkutíma. Að lokinni göngu er gestum boðið í kaffisamsæti í samkomusal Hallveigarstaða þar sem Lay Low tekur lagið.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin!
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir, Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands