
fyrsta konan sem verður formaður Landssambands eldri borgara. Þær vildu með því vekja athygli á því að konur hasla sér völl á æ fleiri sviðum samfélagsins.
Jóna Valgerður er kvenfélagskona, var formaður Kvenfélagsins Hvatar í Hnífsdal í mörg ár, einnig formaður Sambands vestfirskra kvenna í 6 ár og er núna formaður Sambands breiðfirskra kvenna og hefur verið s.l. 10 ár. Hún segir að sína fyrstu reynslu af félagsmálum hafi hún fengið í kvenfélögunum og þau séu mjög góður skóli fyrir konur til að þjálfa sig í félagsstörfum. Jóna Valgerður hefur setið í fjölmörgum nefndum og félagastjórnum í gegnum ævina, og gegnt þar formennsku. Hún sat á Alþingi fyrir Vestfirði 1991-1995. Hún hefur setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og sveitarstjórn Reykhólahrepps þar sem hún gegndi starfi oddvita og síðar sveitarstjóra þar til hún hætti sökum aldurs. Eftir það hefur hún verið virk í starfi ýmissa félagasamtaka í Reykhólahreppi þar sem hún býr nú í Mýrartungu 2. Þangað flutti hún ásamt manni sínum Guðmundi H. Ingólfssyni árið 1996, sen hann lést árið 2000. Í sveitinni unir hún sér vel, þar sinnir hún skógrækt og ræktun íslenskra hænsna og tekur á móti börnum og barnabörnum, en hún á 5 börn, 16 barnabörn og 7 langömmubörn. Hún hefur starfað í Félagi eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi í 8 ár, verið í stjórn þar og einnig síðustu tvö árin í stjórn Landssambands eldri borgara(LEB) þar sem hún var kosin formaður á landsfundi samtakanna nú í vor. Forseti Íslands veitti Jónu Valgerði fálkaorðuna 1.jan.s.l. fyrir félagsmálastörf á landsbyggðinni.