Kvenfélagskvöldkaffi á Zoom

Hér er pósturinn með slóðinni sem fór á þær sem eru skráðar:  Getur notað slóðina ef þetta kom ekki til þín.  Gæti lika farið í spam afþví þið eruð svo margar.  En var samt gert í mail merge til að reyna að koma í veg fyrir það.

Sæl kæra «Nafn»

Takk fyrir að skrá þig á Kvenfélagskvöldkaffi á Zoom, þar sem stjórn Kvenfélagasambandsins býður þér að taka þátt með hátt í 200 kvenfélagskonum um land allt.  Þegar þetta er skrifað eru 150 konur skráðar á fundinn og þær koma víða að.

Við opnum fyrir fundinn klukkan 19:30 en hefjum dagskrána klukkan 20:00.

Stjórn KÍ byrjar á því að kynna sig, svo segjum við aðeins frá Viku einmanaleikans sem hefst á föstudaginn.  Linda Baldvinsdóttir er fyrirlesari kvöldsins. Við drögum svo út nöfn í happahjólinu.

Gott að skrá sig inn sem fyrst til að vera orðin klár á fundinn ef þú skyldir þurfa aðstoð. Þá er gott að hóa í einhvern sem er kannski betri í tækninni en þú. Við getum því miður ekki aðstoðað alla héðan. Fer allt eftir þínu eigin tæki.  En þetta á samt að vera einfalt. En það er nú bara þannig að það sem maður hefur ekki notað áður getur virst flókið.  

Til að skrá þig inn á fundinn notar þú eftirfarandi slóð. Og þetta er passcode á fundinn: Passcode: 296333

Join Zoom Meeting

https://us02web.zoom.us/j/89685263637?pwd=UUE2UekMmD8IOpJ9uShHqSKb5FJUlD.1

Meeting ID: 896 8526 3637

Passcode: 296333

Leiðbeiningar er að finna hér:

https://us02web.zoom.us/meetings/89685263637/invitations?signature=uNeSnPT-_Vh_0ikyuUHM4UJGZgbPoRx_LV6BUrmUEbo

Skjáumst hressar á fundinum í kvöld.

Jenný Jóakimsdóttir

Kvenfélagasamband Íslands

Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum

Túngötu 14. 101 Reykjavík

www.kvenfelag.is

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

s:  5527430/8377430

 

Kvenfélagasamband Íslands býður kvenfélagskonum um allt land í kvenfélags kvöldkaffi á Zoom miðvikudaginn 30. september nk  kl. 20:00
Skráðu þig hér:https://forms.gle/4jLpTVEier1Aznr67

 

Á fundinum kyndum við meðal annars undir Viku einmanaleikans sem verður dagana 2. - 9. október.  

Gestur kvöldsins að þessu sinni er: Linda Sigríður Baldvinsdóttir. Linda er markþjálfi, samskiptaráðgjafi, NLP Practitioner og rithöfundur.  Hún er höfundur LSB Method™, átta vikna persónulegs þroskaferlis, og heldur námskeið, retreat og einstaklingstíma undir merkjum lindab.is. Fyrirlestur hennar Einmanaleiki - ósýnilegi faraldurinn, fjallar um hvað einmanaleiki er, hversvegna hann er svo útbreiddur i dag, hvernig við þekkjum hann hjá okkur sjálfum og öðrum. og hvað við getum raunverulega gert til að rjúfa hann. 

Hún talar af hlýju, húmor og reynslu um það sem skiptir okkur mestu máli: sambandið við okkur sjálf og aðra.

Opnað verður fyrir Zoom klukkan 19:30 svo allar hafi tíma til að koma sér fyrir, geta spjallað og skálað í kaffibolla eða öðrum drykk að eigin vali.

Dagskráin hefst klukkan 20:00

Athugaðu að til að eiga möguleika á vinning í happadrættinu þarftu að skrá þig hér að ofan og vera viðstödd á fundinum þegar dregið er.    
 
Zoom slóð verður send á skráða þátttakendur um hádegisbilið 30. september. Þær sem skrá sig eftir það geta verið með en eru þá ekki skráðar í happadrættið. Slóð verður svo birt hér og á heimasíðu KÍ seinnipart dags tímanlega fyrir fundinn 30. október. 

Fyrir allar kvenfélagskonur í KÍ hvar sem þær eru á landinu eða heiminum. 
 
Þú mátt ekki missa af þessu!

Hristum okkur saman og eigum góða stund.

Dagskráin hefst formlega klukkan 20:00 en við opnum á Zoom klukkan 19:30 með fordrykk. Þar getum við byrjað á fyrsta kaffibollanum eða öðrum drykk að eigin vali og spjallað við aðra þátttakendur.

Vonumst til að sjá ykkur sem flestar.

 

Kvenfélagasamband Íslands

Hallveigarstöðum  - Túngötu 14  - 101 Reykjavík
552 7430 
kvenfelag@kvenfelag.is

© 2017 - 2024 Kvenfélagasamband Íslands