Stjórnarkonur KÍ hafa verið á faraldsfæti um landið
Stjórnarkonur KÍ hafa verið á faraldsfæti um landið til að heimsækja aðalfundi og ársfundi héraðssambanda og munu halda því áfram.
Dagmar og Lena gjaldkeri KÍ mættu á 96. ársþing Sambands sunnlenskra kvenna sem fór fram á Laugalandi laugardaginn 20. apríl sl. Ársþingið var í umsjón félagskvenna í Einingu í Holtum og Lóu í Landsveit.
Helga Magnúsdóttir ritari í stjórn KÍ var gestur á aðalfundi Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga sem haldinn var laugardaginn 20. apríl. Umsjón með fundinum hafði Kvenfélag Fnjóskdæla.
Aðalfundur Sambands Austur-húnvetnskra kvenna var haldinn í sal Samstöðu á, Blönduósi fimmtudaginn 18. apríl síðastliðin. Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti KÍ var gestur á fundinum.
Dagmar mætti einnig á Aðalfund Kvenfélagasamband Kópavogs sem haldinn var 15. apríl í Bæjarlind Kópavogi. Þuríður Guðmundsdóttir meðstjórnandi í stjórn KÍ mætti á aðalfund Sambands borgfirskra kvenna sem haldinn var í Hreðavatnsskála 9. apríl síðastliðinn. ...
Lesa nánarSkráning er hafin á landsþing á Ísafirði
Skráning er nú hafin á 40. landsþing Kvenfélagasambands Íslands sem fram fer á Ísafirði dagana 11. - 13. október næstkomandi.
Landsþingssíðan er www.kvenfelag.is/landsthing , auk upplýsinga og skráningarforms má þar finna fyrstu drög að dagskrá þingsins. Sjáumst á Ísafirði í haust.
Smelltu á myndina til að fara á upplýsingasíðu landsþings.
...
Lesa nánarFyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2024 er komið út
Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar þetta árið er komið út. Húsfreyjan fagnar 75 árum í ár, en fyrsta tölublaðið kom út 1949. Allan þennan tíma hefur Kvenfélagasamband Íslands gefið Húsfreyjuna út fjórum sinnum á ári, með aðeins örfáum undantekningum. Húsfreyjan er mikilvægur hluti af menningu þjóðarinnar og hefur nú í sjötíu og fimm ár varðveitt og endurspeglað á einstakan hátt íslenska kvennasögu.
Forsíðuviðtalið að þessu sinni er við Snædísi Yrju Kristjánsdóttur. Snædís var aðeins sex ára gömul þegar hún uppgötvaði sjálf að hún hefði fæðst í röngum líkama. En hún var samt ekki tilbúin að viðurkenna það fyrir sjálfri sér fyrr en hún varð sextán ára. Í dag blómstrar hún í réttum líkama. Hún hefur alla tíð verið afar opinská varðandi allt það ferli sem hún hefur gengið í gegnum um.
Að venju er í fyrsta tölublaðinu í tilefni Dags kvenfélagskonunnar 1. Febrúar, lögð sérstök áhersla á að kynna starf kvenfélaganna víða um land. Sagt er frá 100 ára afmæli Kvenfélags Grindavíkur, en þær héldu up...
Lesa nánarÁ döfinni
Húsfreyjan
Áskrift að Húsfreyjunni kostar kr. 6.900 árið 2024 fyrir fjögur tölublöð. Blaðið í lausasölu kostar 2 250 kr.
Vitundarvakning um fatasóun
Matarsóun
Pilspoki KÍ
Húfuverkefni KÍ.
Hekluð vagga
Viltu gerast áskrifandi eða gefa áskrift að Húsfreyjunni?
Áskrift að Húsfreyjunni kostar kr. 6900 árið 2024 fyrir fjögur tölublöð. Nú er líka hægt að lesa rafrænar útgáfur á áskriftarvefnum. Þú velur hvort þú vilt Húsfreyjuna á prenti, rafrænt eða bæði.
Blaðið í lausasölu kostar 2250 kr.
Nýjustu fréttir
Stjórnarkonur KÍ hafa verið á faraldsfæti um landið
23. apríl 2024
Skráning er hafin á landsþing á Ísafirði
20. mars 2024
Fyrsta tölublað Húsfreyjunnar 2024 er komið út
07. mars 2024